ISMAR

SÓSÍALISMI
Þú átt 2 kýr. Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.

KOMMÚNISMI
Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.

FASISMI
Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.

NASISMI
Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.

SKRIFRÆÐI
Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.

HEFÐBUNDINN KAPITALISMI
Þú átt 2 kýr.Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein

SÚRREALISMI
Þú átt 2 gíraffa. Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.

BANDARÍSKA FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr. Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.

ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR

- Íslendingar
Þú átt 2 kýr.Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, meðeigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.

FRANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr. Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þúvilt eiga þrjár kýr.

JAPANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju,„Kúmann“, sem nær miklum vinsældum um allan heim.

ÞÝSKT FYRIRTÆKIÞú átt 2 kýr.Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar.

ÍTALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr. Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að borða.

RÚSSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr.Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr.Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr.Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.

SVISSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun.Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.

KÍNVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.

INDVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.Þú tilbiður þær.

BRESKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.Báðar eru með gin-og klaufaveiki

ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.Bissnessinn gengur vel.Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.

NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.Sú til vinstri er asskoti löguleg.

ÍRASKT FYRIRTÆKI
Allir virðast eiga fjölda kúa.Þú segir öllum að þú eigir enga.Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið.Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...


SKEMMTILEGT 'ik?

Ummæli

Heiðagella sagði…
þú ert svo ágætur
Addý Guðjóns sagði…
Þetta er alveg brillíant.

Vinsælar færslur